Færsluflokkur: Löggæsla

Gleðileikur innihaldsleysisins.

Leiðtogafundi Evrópuráðsins er lokið. Allir eru sammála um að umbúnaður fundarins, öryggisgæsla og framkvæmd hafi verið frábær. Við eigum því hrós skilið. Jákvæður árangur af fundinum er fyrst og fremst, að það var fjölgað í lögreglunni og hún fékk þjálfun og tæki,sem á hefur skort í langan tíma. 

Fundir sem þessir eru athyglisverðir einkum fyrir þá sök, að þeir sem taka til máls eru sammála síðasta ræðumanni og reyna að yfirbjóða hann í orðfæri og framsetningu. Megintemað Rússar eru vondir komst vel til skila. Niðurrigndir fulltrúar með kalda sultardropa í nefinu komnir inn í Hörpu úr norðannepjunni töluðu um ógnir af loftslagshlýnun, sem er álíka raunveruleg og Grýla og Gilitrutt í hugum ungbarna á árum áður.

Utanríkisráðherra meinaði breska forsætisráðherranum að taka á dagskrá, raunveruleg vandamál þ.e. Innflytjendamálin og vandamál vegna furðulegra dóma Mannréttindadómstóls Evrópu. Sagt er að honum hafi verið svo misboðið að hann lét sig hverfa þegar hann hafði gætt sér á lambalærinu og fúlsaði við skyrinu sem sletta átti í hann í eftirrétt.

Í sjálfu sér var eðlilegt að utanríkisráðherra meinaði Rishi Sunnak forsætisráðherra Breta, að tala um eitthvað sem gæti eyðilagt þann guðdómlega gleðileik innihaldsleysisins, sem fram fór í Hörpu sl. þriðjudag og miðvikudag. 

Ef til vill vantaði mann eins og listmálarann Jóhannes Sveinsson Kjarval til að greina mikilleik ráðstefnu eins og þeirri sem fram fór í Hörpu. Hann var fyrir löngu á fundi í Félagi íslenskra myndlistarmanna og fannst lítill árangur af fundarstörfum og tók því til máls og sagði: 

"Heiðruðu félagar. Áður en ég kom á fundinn var ég að lesa í Vísi og rakst þar á auglýsingu um að grár köttur hefði tapast. Eins og þið finnið þá er frost og nepja, svo að veslings kötturinn getur haft illt af. Nú er það svo, að félag þetta hefur fátt unnið sér til fræðgar eða ágætis, þá legg ég til að við slítum fundinum nú þegar og förum að leita að kettinum. Það er ekki víst að við finnum köttinn, en það verður þó líklega fjallað um þetta framtak í blöðunum."


Klerkarnir hvika

Brottflæmdir Íranar hafa mótmælt harðýðgi og mannréttindabrot klerkastjórnarinnar víða um Evrópu undanfarið.

Ég gekk inn í einn slíkan mótmælafund í London fyrir nokkru. Það sem vakti helst athygli mína var aragrúi mynda af ungu fólki allt niður í 11 ára, sem öryggissveitir klerkastjórnarinnar höfðu myrt frá því að friðsöm mótmæli hófust í landinu. 

Fréttir meginstraumsmiðla eru svo lélegar og nánast allsstaðar þær sömu. Mikilvægar fréttir fara iðulega framhjá fólki vegna þess að ekki er fjallað um málin. Þegar landsliðið í knattspyrnu neitar að syngja þjóðsönginn á HM í Katar sér fólk hvað undiraldan er gríðarleg.

Nú lofar stjórn Íran að leggja niður siðgæðislögregluna og hætta að  skylda konur til að hylja hár sitt og andlit með tilheyrandi höfuðbúnaði. Eftir er að sjá hvort þetta gengur eftir og hvort að fólk sé ekki orðið svo langþreytt á þursaveldinu, að það hætti ekki fyrr en almennum lýðréttindum hefur verið komið á og klerkastjórninni ýtt til hliðar. 

Ríkisstjórn sem myrðir eigin borgara breytist þá í hryðjuverkasamtök. Í Hyde Park í London varð ég þess var að ríkisstjórn Íran er ein slík. Þeirri ríkisstjórn miðaldahugmyndafræði og ógnarstjórnar verður að koma frá völdum.

Ekki virðist vefjast fyrir írönskum konum, að telja höfuðblæjur og handklæði um  höfuð vera tákn ófrelsis kvenna. Á sama tíma fjölgar slæðukonum á götum Reykjavíkur og sértrúarhópurinn á RÚV fagnar og telur þann búnað hinn ákjósanlegasta fyrir konur og fjarri því að hafa nokkuð með áþján karlaveldisins að gera.

Á sama tíma heyja konur og frelsissinnar í Íran hatramma baráttu gegn þessu tákni ófrelsisins og femínistahreyfingar á Vesturlöndum finnst sér það vera algjörlega óviðkomandi. 

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband