Neyðarástand?

Þarf ekki að fara að fjölga í lögregluliði höfuðborgarsvæðisins? Það er eins og fulla tuglið þessa dagana sé að gera suma vitlausa, og þá auka þeir smithættuna!


mbl.is Tilkynnt um líkamsárásir aðra nóttina í röð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þetta frétt?

Hverju á maður að trúa? Allir sakborningar segjast vera saklausir, allavega flestir. 

Var það tilviljun að börnin fengu nánast allt hlutafé rétt er eftir að þetta mál kom upp? Já, spyr sá sem ekki veit?! :-(


mbl.is Mistök að hafa ekki haft betra eftirlit
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dásemd 💕

Það er eitt það dásamlega við lífið,er þegar barn fæðist, og þessi frétt er dásamlega jákvæð, ekki veitir af á þessum skrýtnum tímum. 

Góðar stundir.


mbl.is Fæddist í bílasal slökkviliðsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rússnesk rúlletta!

Eru yfirvöld á Íslandi ekki að taka óþarfa áhættu með þessu? Það hlýtur að vera hægt að framkvæma þetta betur en gert er!


mbl.is Blöskraði aðkoman í Leifsstöð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hinn innri maður!?

Þetta mál sem er rekið svolítið í fjölmiðlum er pínu skrítið, miða við viðbrögðin hjá atvinnurekendum.

Þegar Herjólfur OHF var stofnað þá fannst mér og mörgum öðrum Eyjamönnum mikil breyting á rekstri sjósamgagna milli Eyja og Íslands, en nú virðast vera að koma ýmis kurl til grafar!

Ég hef óbeit á samtökum atvinnulífsins, það virðist vera starfsregla hjá þeim að hunsa allar viðræður, svo þegar allt er komið í hnút þá gasprar þau um sakleysið sitt!

Hvað er löglegt við það að ætla að þvinga meirihluta starfsfólks í sjómannafélagið Jötun?

Ég sé ekki betur en að Herjólfur OHF sé að kynda mikið mál upp í dómskerfinu!

Ekki hef ég trú á öðru en að bæjarstjórn Vestmannaeyjabæjar taki í taumanna og segir sig frá þessu bulli!

Góðar stundir.


mbl.is Vinnustöðvun áhafnar Herjólfs hefst á miðnætti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki gott!

Það verður að fresta deildinni hjá meistaraflokkum karla og kvenna, þetta gengur ekki að margir leikmenn í fataliði hvers félags séu í sóttkví!


mbl.is Smitaðir leikmenn í mörgum liðum?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvaða bull er í gangi?

Hvaða bull er þetta, á fólk ekki að fara í sóttkví þegar það kemur til Íslands?

Þetta er startið á seinni bylgjunni!


mbl.is Lögreglan lýsir eftir þremur Rúmenum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kommar!

Gat það nú verið að kommúnistar vilja ekki atvinnu fyrir fólkið, heldur eiga allir að vera á bótum! 

Engin furða þó ég hafi aldrei kosið þessa bjána.


mbl.is Höfnuðu framkvæmdum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kommar!

Svona er kommaríkjum rétt lýst, enda tel ég varhugavert að trúa öllu sem kemur frá Kínverskum stjórnvöldum!


mbl.is „Týndur“ kínverskur blaðamaður birtist á nýjan leik
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsti forseti Íslands?

Það verður gaman að sjá hvað Íslendingar gera? Mér lýst mjög vel á Guðmund Franklín, og mun hann fá mitt atkvæði.

Góðar stundir.


mbl.is Guðmundur Franklín gefur kost á sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband