Stórnsýsluklúður !!!!!!!

IMG_9322Herjólfur ný kominn inn í Land-EyjahöfnÞað er þá eins og mig grunaði, siðleysið er jafnvel verra er ég hélt, og eins og ég sagði alltaf auðvaldið stjórnar Íslandi.

Það er kannski engin furða að Landeyjarhöfn skildi verða að veruleika, sem hún átti ekki að verða, allavega vildi ég athuga göng fyrst og svo nýtt og stærra skip í Þorlákshöfn.

Landeyjahöfn ætlar að kosta okkur skattgreiðendur svipaðan pening og kostar að bora göng eftir 25 ár.

Mér finnst góð greinin hans Þornbjörns Víglundssonar í "fréttum" en þar skrifar hann um verðlagningu á fargjöldum með Herjólfi, sem er dýrara að ferðast með þjóðveginum okkar en flottustu skemmtiferðaskipum heims! Þvílíkt bull, en það hef ég bent á áður að það er ekki góðri lukku að stýra að hafa svona fyrirkomulag á framkvæmd þjóðvegarins okkar, ef einhver dugur væri í þingmönnum okkar þá færu þeir í það mál að fá Herjólf viðurkenndan sem þjóðveg okkar hérna á milli lands og Eyja!!!! En því miður er það ekki svo, auðvaldi hefur hreðjatak á þingmönnum, og engir peningar eru settir í samgöngur til Eyja til að bæta ástandið!!!!

Ég set hér mynd af Herjólfi koma inn í Landeyjarhöfn. Það hefði verið betra ef Steingrímur Sigfússon hefði ekki stytt skipið á teikniborðinu!


Landeyjabull !!!!!!!!!!!!

Mikið er ég orðin þreyttur á þessu endalausa bulli í kringum Landeyjarhöfn.

Hvað ætla ráðamenn og konur þessa lands að halda okkur hér í Eyjum lengi í heljargreypum samgönguleisis?????

Ja manni er spurn????

Eina þróunnin síðan 1976 er togara-Herjólfur kom er að það eru tvær ferðir á dag í stað einnar!

Kannski verður eitthvað gert til að laga ástandið, verður maður bara ekki að vera bjartsýnn??????


mbl.is Mokað upp úr Landeyjahöfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áramótapistill

Kæru blogglesendur, ég óska ykkur gleðilega jólarest.

Mig langar aðeins að skrifa um hugrenningar mínar, en ég sá þátt á ÍNN í gærkveldi með Ingva Hrafni, en Ingvi var að spjalla við Skúla Mogensen og Róbert Guðfinsson, það var svo sem ekki frásögufærandi, nema að mér fannst rauði þráðurinn hjá Skúla og Róbert að þeir eru miklir föðurlandsvinir.

Það er nú öruggt að bankahrunið hefði ekki örðið EF bankafólkið væri jafnmikið á sömu línu og þeir Skúli og Róbert!

Ég ætla að vera jafn bjartsýnn og þeir títtnefndu Róbert og Skúli á næsta ár.

Þetta ár sem er að líða undir lok er búið að vera gott fyrir flesta, en ekki alla því miður.

Ég er búinn að vera að velta fyrir mér hvað við Eyjamenn og konur ætla að gera í atvinnumálum, ég hef GRUN um að ökkur Eyjamönnum hafi fækkað á þessu ári, vonandi ekki.

Mér finnst að það ætti að reyna að byggja upp annan atvinnurekstur en í sjávarútvegi, mig hefur alltaf undrað hvað vantsverksmiðja er lengi í býgerð, en það var byggt hús undir starfsemina rétt fyrir hrun svo bara ekki söguna meir! Það hlýtur að vera eitthvað sem er hægt að byggja upp annað en fiskur!

Sjálfsægt kemur samgönguleisið við Vestmannaeyjar mest þar við sögu! Já ég ætla ekki inn í þá umræðu, því það gerir hvern mann gráhærðan og er víst nóg af þeim á mínum haus. :-)

Kæru lesendur og vinir og ekki síður bloggvinir, ég óska ykkur gleðilegs nýs árs, með von um að næsta ár verði betra en núverandi ár. laughingcool


Reynsla!!!!

Er þá ekki þörf á því að fá nýtt skip sem tekur fleiri farþega og bíla???????

Nei þeir ætla að þvermóðgat við eins og moldbúar, og stoppa samgönguþróina!!!!!!


mbl.is Yfir 300.000 farþegar með Herjólfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Græðgi!!!!!!

Það er ekki ný bóla að kaupmenn og heildsalar falli í gryfju græðginnar!!! :-(


mbl.is Verðlækkun sést ekki í verslunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bjartsýnisfólk ?

 

Eru Eyjamenn mikið bjartsýnisfólk? Mér sýnist það allavega þegar ég les bæjarblaðið Fréttir, ég er kannski alltaf með hálftómt glas eins og einn vinur minn í Reykjavík sagði við mig um daginn, allavega er fólk bjartsýnt á samgöngur við Eyjar í gegnum Landeyjahöfn, kannski er þetta bara Polly Önnu leikur hjá fólki, leið til að réttlæta tilveruna hér í Eyjum. Ég persónulega vill hvergi annarstaðar búa, en það er ekki að marka það, ég er svoddan Eyjapeyji.😃 En samgöngu mál okkar hér við Vestmannaeyjar á sjó eru og verð óbreytt, það er allavega mín sýn miða við opinber gögn!

Góðar stundir kæru lesendur.


Græðgi?

Er nú nauðsynlegt að reisa allar þessar byggingar? Eða höfum við efni á því að byggja allt þetta rými? Ekki hef ég alveg svo mikið vit á því, en hitt veit ég þó að ríkið skuldar ennþá mikið fé, væri ekki rétt að borga niður þær skuldir fyrst og sjá svo til !!!


mbl.is Ígildi Smáralindar á Hörpureitnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Embættismenn hjá ríkinu!!!!!!

Ég er farin að sjá hvað fyrrverandi sýslumaður okkar Eyjamanna var góður kall í embætti, hann klippti allavega ekki svona snökt á notkun bekkjabíla, auðvita má alveg útbúa bekkjabíla til farþegaflutninga!


mbl.is Bekkjabílarúntur úr sögunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samgöngur enn og aftur!

Nú er innanríkisráðherra ( Ólöf Norðdal ) búinn að biðla til samráðherra sinna um fjármagn fyrir Land-Eyjarhöfn, og gaman verður að sjá hvað kemur út úr því, það fylgdi ekki fréttinni hvort sanddæling væri innifalin í þessum 1300 miljónum sem Ólöf bað um, en það veit ég að það þarf miklu meira enn einn komma þrjá miljarða til að laga þessa hálf byggðu höfn!

Góðar stundir kæru lesendur þessa bloggs.


Ekki mönnum bjóðandi!!!!

Nei það er auðvita ekki mönnum né konum bjóðandi svona samgöngur, en þeir ætla að bjóða okkur Eyjamönnum upp á svona vitleisu!!!!

Ásmundur félagi og alþingismaður, hafðu þökk fyrir að taka málið upp á þingi.wink


mbl.is Ríkisstjórnin með mökum í sama klefa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband