Villuráfandi!

Kall greyið! að hafa þvælst inn í þennan hryðjuverkaheim, það væri laglegt ef við værum öll svona skemmd, þá væri mannkynið útdautt!

Donald Trump er búin að setja sig í sömu villimanna spor og hryðjuverkamenn!


mbl.is Segist saklaus
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stórslys!

Eru ekki búin að vera nógu mörg stórslys á ferðamönnum? Ég bara spyr?

Það á að rukka alla ferða menn um tryggingu sem gæti dekkað björgunaraðgerðir, svo endurgreiða ef ekkert kemur fyrir þau!


mbl.is Ferðamenn fóru langt út á Jökulsárlón
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Greyið hann Guðmundur!

Hann Guðmundur í Brim mun komast að því með þessari rannsókn að hann sjálfur er aðal sökudólgurinn í þessu brottkast máli!

Grey hann að vita það ekki!


mbl.is Skipstjórinn fagnar rannsókninni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að hengja bakara fyrir smið!

Mér hefur fundist þjóðin hafa hengt rangan mann, þó svo að Geir hafi gert eitthvað rangt, ekki það að Geir sé eitthvað uppáhald hjá mér, þá áttu svokallaðir útrásarvíkingar að vera í Geirs stöðu!

Góðar stundir


mbl.is Dæmt í máli Geirs í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að éta undan sér!

Þetta besta fiskveiðistjórnakerfi í heimi er ekki betra en þetta! 

Brottkast hefur verið við lýð alla tíð!


mbl.is Segir áhyggjur af brottkasti að mestu óþarfar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslendingar!

Ég hefði nú haldið og veit ekki betur en að íslensk lög nái yfir Íslendinga! En að þessari frétt að dæma verður ekki betur séð en að það sé rengt, flugfreyjurnar hljóta að borga félagsgjöld til flugfreyjufélagsins?

Góðar stundir.


mbl.is Vinnustöðvun gegn Primera ólögmæt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hraustur!?!

Ég las það í morgunblaðinu í dag að Viktor samúelson sé hraustur! Það er greinilegt að blaðamaðurinn Andri Yrkill Valsson veit ekki að það að vera hraustur er ekki það sama og vera STERKUR! Auðvita er Viktor heilsugóður af öllum þessum lyftum.

Mér finnst þetta vera algengur misskilningur, því miður.

Góðar stundir.


mbl.is Svekkjandi niðurstaða hjá Viktori á HM
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Besta liðið!

Það var mikið að þeir hrukku í gang, svo er það nú frekar bjart framundan með alla heimaleikina fram í mars!

Áfram IBV alltaf allstaðar!

Góðar stundir.


mbl.is ÍBV fyrst til þess leggja FH að velli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sektargreiðslur!

Það þýðir ekkert annað en að sekta fólk um háar greiðslur til að koma í veg fyrir svona lagað, hvað haldið þið að eitt svona útkall kosti?!


mbl.is Hélt að vinkonan hefði gengið í sjóinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Austfirðingar!

Ætlar ökumaðurinn á austurlandi að valda því að göngin verða lokuð aftur? Íslenskir ökumenn eru svoddan Víkingar, og fara ekki eftir lögum! Þetta er náttúrulega foráttuheimska!

Góðar stundir.


mbl.is „Hraðinn í göngunum gífurlegur“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband