Hafnarfréttir

SkandiaJæja nú ber svo undir að hið fræga skip Skandia er komið til Eyja, en Danirnir komu í gærkveldi um miðnættið. En svo er nú um veðrið að dæluskipið getur ekki farið upp í Bakkafjöru strax, fyrir utan það að það er ekki alveg klárt í dælingu.

Selfoss var hjá okkur í gærmorgunn og fór í hádeginu, svo á ég von á Arnarfelli í dag, en það er ekki gott leiði sem hann fær frá Reykjavík. Annars er allt gott að frétta frá höfninni, flestir í höfn vegna brælu, nokkrir úti við Eiði í vari.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband