Skandall????????

SkandiaEr það furða að maður spyrji hvort það sé skandall á samgöngum við Eyjar þessi misserin, það er allavega ekki í lagi með Landeyjahöfn, eins og staðan er núna. Það er nú þannig að ÞEIR sem ráða hjá Íslendingum gagnvart þessari framkvæmd þarna upp í Bakkafjöru, hafa kúkað upp á bak eða upp fyrir haus, og þá meina ég líka þeir hjá Eimskip, þessir menn og konur er búnir að skapa efni í margar bækur, en það yrði hryllingssaga, því miður!

Það nýjasta í Skandalnum er að Færeyingurinn og hans menn á Skandia eru væntanlegir í smá verkefni hjá Vestmannaeyjahöfn á morgun, við að dýpka inn í dokkinni hjá skipalyftunni, skipalyftan er að verða tilbúinn til niðursetningar. Skandia getur hvort sem er ekki verið í Landeyjarhöfn á morgun, það á að lægja vind í kvöld og snúast í norð-vestan áttar á morgun.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband