Formaður Sjómannasambands Íslands

Ég hef þá trú að Valmundur eigi eftir að standa sig í nýju starfi.

Mig langar að þakka Valmundi fyrir þessi tuttugu og fimm ár hér í Eyjum, ég hef ekkert annað en gott af honum að segja.


mbl.is Valmundur nýr formaður Sjómannasambandsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Já Helgi Þór , ég hef líka trú á að hann eigi eftir að standa sig í þessu starfi. Sjómenn hafa nú ekki haft kjarasamninga í 3 til 4 ár þannig að komið er tími til að gera samninga. En sjómenn verða þá líka að standa saman ef takast á að gera góða samninga.

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 7.12.2014 kl. 14:54

2 Smámynd: Helgi Þór Gunnarsson

Sæll Sigmar, það er nú eitt mesta böl sjómanna hvað þeir standa illa eða bara ekkert saman, ég hef þá reynslu að ég var á loðnubát sem átti að taka jólafrí 20 des, en vegna þess hvað skipstjóranum gekk illa að fiska til að byrja með í flottroll og fiskiríið glæddist, þá sömdum við við KALLIN að sleppa fríum og bæta þeim við jólafríið, ekkert mál, en svo kom að skuldadögum, þá breyttist hljóðið í KALLINUM. 19 des er allt orðið brjálað í setustofunni og á endanum fer ég upp í brú og spyr KALLIN að því hvort hann ætli ekki að standa við loforð sitt, nei sagði hann, þá sagði ég honum að sjómannafélagið Jötunn væri að fylgjast með honum. Þrem dögum seinna er ég rekin, og öllum um borð var drullusama, ég fékk sem sagt hnífinn í bakið frá mínum gömlu félögum! Það býður alltaf maður á bryggjupollanum eftir plássinu. :-(

Helgi Þór Gunnarsson, 7.12.2014 kl. 20:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband