Móður afi minn

Afi minn í móðurætt hét Willum Jörgen Andersen fæddur í Landlyst hér í bæ fyrir einni öld, nákvæmlega í dag.

Afi var næstelstur af sýnum systkinum, en þau voru öll kennd við Sólbakka hér í bæ.

Willum AndersenWillum afi giftist ömmu minni, henni Lóu á Kiðabergi (Guðrún Ágústa Ágústdóttir) 4 júní 1933 og voru þau gift til 1988 er afi dó.

Afi og amma bjuggu lengst af á Heiðavegi 55, og eru allar mínar minningar um þau þaðan.

Afi var sjómaður mest alla starfsævi, en skipstjóri og útgerðamaður er ég man fyrst eftir mér.

Hér til hliðar er mynd af afa er hann var orðin fullorðin.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Heill og sæll Helgi, ég man vel eftir honum þetta var örugglega góður kall.

Kær kveðja

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 30.9.2010 kl. 23:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband