Þvílíkt þjóðfélag!

Mér verður mikið hugsað um hverskonar þjóðfélag við erum búin að skapa okkur hér á Íslandi, eða á ég kannski að segja að þau þarna í Reykjavík, það er nú spurning? Hver ber ábyrgðina á þessu öllu saman, allir segjast vera saklausir á Bankahruninu.

Ég er nú komin á þá skoðun, að eina sem raunhæft er í stöðunni fyrir fólkið er bylting, og þá meina ég alvöru bylting, ekki búsáhalda eitthvað bull. Það þarf að ná í útrásarvíkingana og stilla þeim upp á torg, og láta þá svara til saka, og náttúrulega láta þá skila peningunum sem þeir stálu úr bönkunum, það held ég að sé eina vitið gagnvart fólkinu í landinu Ísland.

Á meðan auðvaldið og embættismannaklíkan ræður öllu hér á landi, verður lýðurinn kúgaður.

Fólkið eru þrælar ríkis og banka, en ekki öfugt.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband