Alveg í rusli!

Nú get ég ekki orða bundist í sambandi við ruslamál okkar Eyjamanna, ef það er rétt það sem ég heyri og les í blöðum hér í Eyjum.

Ætli kommarnir í ríkisstjórninni með Svandísi umhverfisráherra í fararbroddi viti af vitleysunni sem á að fara að frammkvæma hér í Eyjum, ef svo er þá hafa þau ekki mikið vit á hvað er mengun. Allavega finnst mér það vera vitleysa að flytja allt sorp upp á land og jafnvel til útlanda, frekar en að nota sorpbrennslu í Eyjum!

Hvort skildi menga meira eitt stykki sorpbrennsla eða dráttabíll frá sorpu niður á bryggju í Herjólf, svo Herjólfur sjálfur, svo dráttarbíll alla leið til Blöndós????? Spyr sá sem ekki veit. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband