2012

Jæja þá er janúar næstum því hálfnaður, og mér finnst eins og jólin séu nýbúin, enda eru útiljósaseríurnar en uppi á þakkassanum. Svo er ég búin að fylla tvo mánuði í nýju starfi hjá Ísfell hér í Eyjum, þessi vika var mjög góð hjá starfstöðinni í Eyjum, en við fengum á mánudag liðsauka ofan af landi, þeir hjá Ísfell sendu menn til okkar, meira að segja einn mann frá Akureyri en tvo frá Hafnarfirði og einn frá Þorlákshöfn, svo byrjaði peyi að vinn hjá okkur, þannig að okkur hefur fjölgað í starfstöð Ísfell í Eyjum.

Ég læt fylgja myndband sem ég tók fyrir jól í kaffihlé hjá okkur.


Gleðilegt nýtt ár

Ég sendi öllum lesendum þessara bloggsíðu hugheilar nýárskveðjur, með von um bjarta framtíð.

Kær kveðja frá Eyjum.

Helgi Þór.


Þá kaupir ég 10% minna!

Það hlýtur að segja sig sjálft, ekki hafa laun hækkað, verðbólgan í raun yfir 100% síðustu 3 ár, réttast væri að kaupa yfirleitt ekkert neitt.
mbl.is 10% hækkun á flugeldum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gleðileg Jól

IMG_8064Ég sendi lesendum þessa bloggssíðu gleðilega jóla kveðjur, og ósk mína til handa ykkur um bjarta framtíð.

Aðventugleði

Það er búið að vera svo mikið fjör hér í Eyjum alla aðventuna, að ég gat ekki stillt mig að setja þetta video inn með þessari grein.

Við Auja höfum farið á þrenna tónleika og eitt jólahlaðborð, og svo fór ég á skötukvöld hjá einu af fjölmögum félögum hér í bæ, þannig að aðventan er búin að vera mjög góð.

Mig langar að minnast á tónlistarfólkið okkar, bæði ofan að landi og Eyjafólk, við byrjuðum á Frostrósir, sem eru meiriháttar þó einn þriðji mæti til Eyja af söngvurum og spilurum, uppáhalds söngkona mín kom ekki, en það er hún Guðrún Árný. Svo fórum við á styrktartónleika æskulýðsfélags Landakirkju á þriðjudagskvöld, það var vægast sagt gaman. Svo enduðum við í gærkveldi á jólatónleikum Óskars og Laugu, og verð ég nú að segja að þau toppuðu allt er á undan er gengið, og ég vill meina að við Eyjamenn eigum frábært tónlistarfólk, fyrir utan það að Óskar og Lauga er mjög gott söngfólk, svo vill ég ekki gleyma honum Unnari Sigmunds, hann átti  nokkur góð atriði í gærkveldi, og er Herjólfs hugmyndin 2015 MJÖG GÓÐ.


Tímamót

Loðnulöndunn, ´88 eða ´89Það má nú alveg segja að um þessar mundir eru viss tímamót hjá mér, því eftir að ég "hætti á sjó" þá er ég loksins komin í fasta vinnu sem mér líkar og það bara vel, vissi ég allvel hvernig netavinna færi fram, en það kom mér þægilega á óvart hvað netaverkstæðisvinna er skemmtileg, og ekki skemmir hvað vinnufélagarnir er fínir, góður andi (mórall) og sjálfsagt svífur andi Ingólfs heitins þarna um loftin.

Það er nóg um að vera hér í Eyjum fyrir þessi jól, eins og alltaf, mjög margir viðburðir, svo ef maður vill er viðburðir meira að segja í miðri viku. Við hjónin fórum á Frostrósir hér í Eyjum 7 des, og þau klikkuðu ekki frekar en fyrir daginn, nema í fyrra, þá komu þau bara ekki.    

Svo verð ég að minnast á jólahlaðborðið hjá Einsa kalda og Höllin, við vorum þar á laugadagskvöld, og það er vægast sagt snilld, Einar Björn og Gunnar eru snillingar í svona veislum.

Svo í tilefni þess að það eru að verða þrjú ár með hléum síðan ég hætti á sjó, þá læt ég hér fylgja gamla mynd af mér og strákunum á Sighvati Bjarnasyni VE 81.


Jólaföstuhuleiðingar

SnjóálfarÞað er nú ekki svona mikill snjór hjá okkur núna, en það hefur snjóað svona mikið, þessi mynd er líklega tveggja ára gömul, og tók ég hana hjá jóni og Svönu, sem búa beint á móti mér.

Það eru kannski ekki allir sem vita að ég er búinn að vinna í rúman mánuð á netaverkstæði Ísfell í Eyjum, og líkar mér það vel.


Enginn ný frétt

Það er nú ekki ný frétt að vinnuvélar séu fluttar úr landi, við erum búnir að horfa á fraktskipin koma hér við í Eyjum með svona tæki í þrjú ár!Lóðsinn
mbl.is Vinnuvélar streyma úr landi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þór

Fréttin er furðuleg að því leiti að hún segir ekkert af því að Þór fer fyrst til Eyja, og að skipið er búið að vera við Eyjar í 18 tíma.
mbl.is Hressandi að koma í íslenska veðráttu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband