Árshátíð

Vík í MýrdalJá árshátíð Ísfells var haldin um síðustu helgi austur í Vík í Mýrdal, dvöldum við í tvo sólahringa á Eddu hóteli.

Myndin hér til vinstri er frá Vík, en ég tók þessa mynd í göngutúrnum sem við hjónin fórum á laugardagsmorgunn.

Árshátíðin gekk vel fyrir sig og ekki skemmdi það fyrir að ég varð fimmtugur eftir miðnætti á laugardagskvöldinu.

þeir ferðafélagar sem lesa þetta blogg: Takk fyrir samveruna. Og við eigendur Ísfells segi ég líka takk fyrir okkur, þessi ferð var frábær.


Minning um góðan dreng.

Guðjón Kristinn MattíassonFæddur: 30-4-1962. Dáinn:21-7-2001Nú ætla ég loks að skrifa nokkrar línur í minningu vinar míns Guðjóns, en daglega kölluðum við hann Gaua Matt, ég er búinn að ganga með það í maganum lengi að skrifa um hann Gaua Matt, en ég verð að viðurkenna að kjark og þroska hef ég ekki haft hingað til að framkvæma þann gjörning, nú er svo komið að hann hefði orðið fimmtugur mánudaginn þrítugasta apríl og finnst mér ég ekki geta beðið lengur með að skrifa um vin minn Gaua.Gaui var fæddur og uppalin í Eyjum, sonur Mattíasar Guðjónsonar kenndan við Hvol hér í bæ og Lilju Alexandersdóttur frá Siglufirði.Guðjón var sá drengur sem maður gat treyst og hann var svo traustvekjandi að ég hændist að honum, enda yrðum við nokkuð góðir vinir, og ég var farinn að átta mig á því snemma að hann var þessi  trausti vinur sem flestir eiga bara eitt eintak af, Gaui reyndist mér mikið vel  á okkar yngri árum er maður var vanþroska og vitlaus, en þar átti ég betri vin en ég gerði mér grein fyrir þá.Fyrst man ég eftir Gaua nokkrum  árum fyrir gos er við vorum í öðrum bekk Barnaskóla Vestmannaeyja, en við gerðumst ekki  vinir strax, en ég kynntist Gaua rétt eftir gos, og var það knattspyrnuiðkun og skóli sem kom okkur saman. Góðir vinir vorum við alla tíð, en eftir að við festum ráð okkar sérstaklega ég þá urðu samverustundirnar færri og á tímabili engar. En við hittumst á förnum vegi hér í bæ, og það brást ekki að samtalið endaði  í pælingum  um endurfundi, en það er eins með okkar verk  og öll mannanna verk, þau fara ekki eins og þau eiga að fara, og endurfundir okkar Gaua urðu ekki fleiri meðan hann lifði, en ég hef þá trú að við hittumst hjá honum sem öllu ræður, og ekki veit ég hvort pitla verður  við hönd þá eins var oft hjá okkur vinunum í lifanda lífi en sterkan grun hef ég um það. Margar sögur get ég sagt frá okkur Gaua, en eins og gengur og gerist þá eru þær  ekki allar prenthæfar Það sem mér þykir mjög miður er að við náðum ekki að taka upp þráðinn þar sem hann slitnaði, en við vorum búnir að tala um það að fara að hittast, en við hittumst á hátíðarhöldum sjómannadagsins hér í Eyjum um vorið áður en hann kvaddi þetta jarðneska líf, og töluðum í alvöru að nú gengi þetta ekki lengur, en það var nú eins með mig og Gaua , ef ekki er drifið í því vill lítið verða úr framkvæmdum, og tókum við aldrei upp þráðinn að nýju og er það miður því góður drengur var hann Gaui.Eina vertíð unnum við Gaui saman í Fiskiðjunni,eftir að við vorum hjá Einari og Gaua(Stubbunum)haustið áður, Gaui á lyftara og ég á gólfi eða upp á aðgerðaborði. Það var nú oft fjör enda árið 1981 og við 19 ára. Við vinirnir urðum samferða á sjónum eins og gengur og gerist hér í Eyjum, og finnst mér ég vera nokkuð ábyrgur í því að hann skildi gera sjómennsku að ævistarfi, þannig var að í endaðan ágúst 1982 vantaði menn á Sighvat Bjarnason VE 81, en við stunduðum ufsaveiðar í net og var fiskað í, eins og sagt er til sjós, jæja hvað um það ,en Gaui var að vinna í Fiskiðjunni og ég fór upp í Fiskiðju til hans og spyr hann að því hvort honum langi ekki að koma á sjó, við ætlum að fiska í og sigla til Þýskalands með aflann, svaka flott, en Gaui var eitthvað tregur, en ég hætti ekki fyrr en hann kom með mér niður í bát og það endaði með því að stýrimaðurinn tók niður nafn og kennitölu hans, og þar með var Gaui ráðinn, en okkar samleið byrjaði ekki þarna því ég hætti áður en þeir fóru á sjó en það er nú önnur saga, Gaji fór bara þennan eina túr þarna í ágúst ´82. Sjómennskan hjá Gaua byrjaði ekki að alvöru fyrr en 1984, er hann kemur um haustið á loðnu, sennilega í byrjun október, en ég hætti ´89 en hann var með þeim á Sighvati til ársins 1990 eða 1991, ég er ekki alveg með það á hreinu, en hvað um það, Gaui fékk að leysa af á Smáey VE 144 um vorið 1988, en það get ég staðfest því Logi heitinn Snædal skipstjóri á Smáey bauð mér pláss, en ég var búinn að lofa mér á Huginn VE 55, en ég sagði Loga að ég vissi að Gaui væri laus í augnablikinu, og ég bauð Loga að ég skildi tala við Gaua, og endaði það með því að Gaui réði sig í fast pláss hjá Loga, og þar endaði Gaui sína tilvist hér á jörð, það er að segja, um borð í Smáey VE 144, er báturinn lá við bryggju.Andlát Guðjóns var öllum mikill harmdauði, sérstaklega móður hans eiginkonu,börnum, systkinum og Davíð frænda hans. Ekki get ég neitað því að sorgin bankaði uppá hjá mér, og sérstaklega er ég hugsaði um það á sínum tíma hvernig  faðir Gaua dó 1984 um vorið, þá vorkenndi ég allri fölskyldunni mikið, en  það er oft sagt að þeir sem guðirnir elska deyja  ungir, jú ég verð að trúa því í Gaua tilfelli því ekki var hann gamall er hann kvaddi. Það eina sem ég sé eftir að hafa ekki gert er að hafa ekki ræktað vinskapinn betur við Gauja og hans fjölskyldu. Minning um góðan dreng lifir, hinn æðsti höfuðsmiður himins og jarðar varðveitir fjölskyldu Gaua um ókomna framtíð.Þinn vinur Helgi Þór Gunnarsson. 

Unnið að dýpkun?????

Hvernig getur það talist til framkvæmda að liggja í höfn? En Skandia liggur í Vestmannaeyjahöfn!!!!!!
mbl.is Herjólfir siglir í Landeyjahöfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afsakanir!!!!!

Auðvita eru þau hjá Siglingastofnun að afsaka sig í bak og fyrir, eins og kemur í frétt inn á eyjafréttir.is

En mér finnst bara tími komin að menn og konur á þessari stofnun sem heitir Siglingastofnun Íslands fari að horfa upp úr sandholunni og líta í kringum sig í fjörunni á Bakka, það er að minnsta kosti mín skoðun að hafnagarðarnir í Landeyjahöfn eru allt of stuttir, þeir þurfa að ná út fyrir grunnbrotin!


mbl.is Tvö skip dæla sandi við Landeyjahöfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vorhugleiðingar

Lóðsinn og Skandia Lóan er komin til landsins og var smá vorfílingur í dag, sólin kom upp fyrir tíukaffi og var nokkuð bjart í dag. 

En verst er að veðrið helst ekki lengi, og Skandia liggur í höfn hér í Eyjum, vonandi verður friður fyrir Skandia að dala næstu daga, því það styttist í páska.

Ég hef bloggað um Landeyjahöfn áður, en það er langt síðan, svo ég viðra mína skoðun en og aftur, að Landeyjahöfn verður aldrei alvöru höfn fyrr en þeir lengja garðana út fyrir sandrifið, þeir áttu aldrei að vera með garðana svona stutta, það er með ólíkindum að mönnum hjá hinu opinbera skyldi detta það í hug að hafa garðana svona eins og raun ber vitni, það verður gaman að vita hvað þeir ætla að berja höfðinu oft við steininn eða garðana.

Svo er annað sem er mér hugleikið, en það er fargjöld með Herjólfi, finnst fólki þetta eðlilegt, að það skuli kosta venjulega fjölskyldu tugi þúsunda að koma eða fara hér á milli land og Eyja! 


Skoðanakúgun

Það er orðið svolítið loðið þetta orð skoðanakúgun, ég er ekki lögfróður maður, en mér finnst þetta orðið rugl, ef menn geta ekki tjáð sínar skoðanir á sinni eigin bloggsíðu, já eða hvar sem er, það hljóta að vera mannréttindi að fá að tjá sig. Ég bara spyr, er ekki leyfilegt fyrir kennara að skrifa í frítíma sínum hvað sem er???????????? Voðalega er ég vitlaus, en maður fræðist og ég fer ekki ofan af því að Snorri er einn besti fræðarinn sem ég hafði í skóla!
mbl.is Kærir Snorra til lögreglu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fallegur laugardagur

SkandiaÞessi dagur er ekki venjulegur laugadagur, fyrir utan að vera bjartur og fallegur, þá er Skandia farin á haf út, út úr höfninni, ég er ekki viss hvort þeir fóru upp í Landeyjarhöfn eða eitthvað annað.

Hér til hliðar er mynd að Skandia, en ég tók þessa mynd upp í Landeyjahöfn.


gósentíð veiðiþjófa

Nú geta landhelgisbrjótar hagað sér eins og þeir vilja út á miðunum, verst er með björgunarmál, en svona hefur þetta allatíð verið, ekki bara eftir hrun.
mbl.is Ekkert varðskip úti á miðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þvílíkt bull

Já, þvílíkt bull, af hverju að taka einn mann? því ekki að taka þau öll????????
mbl.is Ákæran standi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Selapíur

GolliÉg er sannfærður að setrið hér í Eyjum væri til í að taka að sér eitt stykki sel, þeir eru vanir vinirnir á setrinu (Goggi og Palli Marvin)

Her til hliðar er mynd af því er "Golla" var sleppt í Mars eða apríl.

Georg Skæringsson er sá sem er út í sjóWink


mbl.is Vilja senda Eve til Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband