Færsluflokkur: Bloggar
Þetta er bara frábært að Bolvíkingar og aðrir landsmenn geti keyrt óhindrað til Bolungavíkur, það er með ólíkindum hvað Íslendingar hafa verið lengi að taka við sér í vegaframmkvæmdum, mér verður oft hugsað til þess er Bandaríkjamenn buðust til að malbika allan hringvegin, nei Íslendingar voru svo stoltir og heimskir að þeir leyfðu kananum að vera nánast frítt hér á landi í tugi ára.
![]() |
Göngin heita Bolungarvíkurgöng |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 15.9.2010 | 15:06 (breytt 28.9.2010 kl. 10:26) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nei, Perlan liggur inn í Friðarhöfn, að minnsta kosti tók ég við endum hennar klukkan tíu mínútur yfir tíu í gærkveldi, og meira segja gat ég selt þeim rafmagn, en ekki vildu þeir vatn.
Þær eru alltaf nákvæmar fréttirnar hjá MBL, eða hitt þó heldur.
![]() |
Reyna áfram að dýpka í dag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 12.9.2010 | 11:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
![]() |
Málið í höndum Alþingis |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 12.9.2010 | 11:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1983 gerði Þráinn Bertelsson bíómynd hér í Eyjum, og er hún mér í fersku minni vegna þess að ég var að vinna í Vinnslustöðinni þegar myndin var tekin upp á filmu þar, mér datt í hug hvort Þráinn væri ekki til í að gera eina en mynd í þessari seríu, og að sjálfsögðu fengi hún nafnið Eyjalíf. Mér hefur allavega fundist fjörið í kringum Bakkafjöruhöfn vera í reyfarastíl, Þráinn gæti varla samið betra handrit, en það sem ráðamenn samgöngumála okkar landsmanna hér á milli lands og Eyja.
Nú fer bráðum að byrja nýr kafli í mínu lífi, er ég lýk minni veru hjá Vestmannaeyjahöfn sem hafnarvörður, en síðasti hafnarvörðurinn kemur úr sumarfríi á mánudag, en ég á helgarvaktina. Þetta er ein skemmtilegasta vinna sem ég hef komist í, mér finnst sama tilfinningin vera sú sama og þegar ég var sextán ára að byrja til sjós, það var einmitt á Herjólfi, og hver veit nema maður endi mína sjómennsku þar. Hér læt ég fylgja mynd af okkur Kristjáni Gunnar Eggertssyni, en ég er einmitt að leysa hann af núna.

Bloggar | 10.9.2010 | 06:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)

Bloggar | 19.8.2010 | 11:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
![]() |
Útbreiðsla makríls hefur aukist |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 13.8.2010 | 20:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það er óhætt að segja það, að það sé traffík í Vestmannaeyjum, sem er auðvita gott.
En það er bara að við Eyjamenn séum í stakkbúnir að taka við þessum fjölda fólks, mér til dæmis fannst fjöldinn á þjóðhátíð full mikill.
En nýja samgöngubótin okkar allra landsmanna er nú þannig að við hafnaverðir höfum nóg í að snúast í kringum Herjólf, sem er auðvita jákvætt.
Ég læt hér fylgja tvær myndir sem vinur minn hann Óskar Elías Óskarsson tók af okkur Kristjáni frá Flötum hér í bæ.
![]() |
Skreppa í sund til Eyja |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 13.8.2010 | 11:11 (breytt kl. 11:12) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
![]() |
Mál Storms í nefnd |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 9.8.2010 | 00:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það er nú ekki einleikið hvað veðrið er fagurt þessa dagana, blíða dag eftir dag og spáir enn meiri blíðu.
Jæja nú er Herjólfur búin að sigla í átján daga upp í Bakkafjöru og inn í Land-Eyjahöfn, en ekki er komin svakaleg reynsla á þá daga, en þó nokkur, eins og til dæmis er það orðið morgunn ljóst að þessi höfn er nokkrum númerum of lítil!!!!!!!!
Já ef við ætlum okkur að hugsa til framtíðar, eða voru samgönguyfirvöld ekki að pæla í nema fimm til tíu árum, mér hlakkar svakalega mikið til í vetur, það er að segja, hvernig höfnin kemur út í verstu veðurskylliriðunum, gaman verður að fylgjast með, ekki það að ég vilji að frátafir verði miklar, heldur að mig langar að sjá hvernig þessi Herjólfur kemur út, sá nýi sem átti að smíða hefði nefnilega átt að vera miklu minni og með minni vélaorku, sem er náttúrulega fráleitt og bull!!!!!
Bloggar | 8.8.2010 | 23:05 (breytt kl. 23:13) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hvort sem menn segja Bakkafjöru eða Land-Eyjahöfn, þá er höfnin sú búinn að fá sína fyrstu eldskírn, en í dag(23/07) var nokkuð rok, en Herjólfur sigldi allar 5 ferðirnar eins og ekkert væri rokið.
Ég var í fyrstu mjög á móti Bakkafjöruhöfn, en í dag sé ég að það þýðir ekkert annað en að vera með.
Hitt er annað mál, að ég hálf kvíði fyrir vetrinum, það er að segja ef hann verður slæmur, sem ég auðvita vona ekki.
Ég hálf óttast mína framtíðarsýn, en ég spáði því að Eyjar yrðu elliheimili og ferðamannastaður eftir svona 30-50 ár, bara vonandi hef ég ekki rétt fyrir mér.
Ég reyni að vera bjartsýnn á þessa nýju samgöngu bót okkar Íslendinga við Heimaey.
Og svo í lokin langar mig að sannreyna þá gróusögu, hvort það sé satt að tveir forsvarmenn framkvæmdanna í Land-Eyjahöfn, hafi siglt á tuðru til Eyja, til þess eins að geta farið með Herjólfi í fyrstu siglinguna aðfara nótt föstudagsins í síðustu viku? Ef einhver bloggvinur minn veit eitthvað um þetta mál, þætti mér vænt um að fá að vita það! Því annar þessara manna bannar siglingar samskonar báta og þeir eru sagðir hafa siglt til Eyja föstudaginn 16 þessa mánaðar.
Bloggar | 24.7.2010 | 00:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)